Barnasáttmálinn innleiddur í leikskólastarf
Markmið þessarar rannsóknar, sem gerð var í fimm leikskólum í Reykjavík, beindist að því að varpa ljósi á reynslu starfsfólks af innleiðingu ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálans) í daglegt starf og hvernig sú vinna mótaði viðhorf, starfshætti og skipulag leikskólanna með hliðsjón af réttindum barna. Rannsóknin byggir á hugmyndum Réttindaskóla UNICEF um rétt barna til þátttöku og lýðræðislegrar menntunar og á kenningum Lundy (2007) um rými, rödd, áheyrn og áhrif. Þá byggir hún á hugmyndum um virka hlustun og siðferðilega ígrundun í réttindanámi.
Gagnaöflun var í formi rýnihópaviðtala við kennara, frásagna þeirra af birtingarmyndum réttinda barna í daglegu starfi og skjalagreiningar. Helstu niðurstöður benda til þess að innleiðing réttinda barna krefjist breytinga á viðhorfum og starfsháttum þar sem faglegt lærdómssamfélag og gagnrýnin ígrundun eru lykilforsendur. Þátttakendur lýstu bæði jákvæðum breytingum í átt að auknu sjálfræði og þátttöku barna en einnig áskorunum á borð við skort á fræðslu, leiðsögn og faglegri forystu. Togstreita kom fram milli verndarskyldu og virðingar fyrir sjálfræði barna en niðurstöðurnar sýna að slík siðferðileg spenna getur orðið uppspretta þróunar, umræðu og dýpri skilnings á réttindum barna. Höfundar varpa fram fræðilegum og hagnýtum ábendingum um hvernig réttindi barna megi festa í sessi í leikskólum með lýðræðislegum viðhorfum og starfsháttum.
Rannsóknin var unnin á árunum 2022 – 2025
Rannsóknin var styrkt af þróunarsjóði Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar.
