Rannsóknir á Menntavísindasviði

Fagmennska og skólar

Læsi, faggreinar og stafræn hæfni

Lífshlaup og samfélag

Menntastefna og menntakerfið

Margbreytileiki og gagnrýnin fræði

Heilsuefling og íþróttafræði

Listir og nýsköpun

Allar rannsóknir

Allar rannsóknir

quilia-zFSo6bnZJTw-unsplash
Launching Inspirational pathways for transFormative Education
LIFE Teacher Academy (LIFE TA) is a model that directly addresses teacher wellbeing and their sustained professional development necessary to transform today’s classrooms

01/01/2026
31/10/2028
gaelle-marcel-AWidiBoRO08-unsplash
Supporting Open Learning and Understanding Teens In Opportunities for Neighbourhoods and Nature
By implementing the project we want to achieve stronger neighbourhoods where marginalized students find meaning and hope in the face of global challenges through local activities based on STEAM learning and networking across formal and informal educational settings.

01/12/2025
31/10/2028
Borgaravitund
Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum
Meginmarkmið verkefnisins er að kanna með hvaða hætti hnattræn borgaravitund birtist í stefnu og starfi íslenskra UNESCO framhaldsskóla. Í samvinnu við kennara og nemendur leitum við svara við því hvaða alþjóðlegu áskorunum er mikilvægast að mæta í sameiningu og hvernig miðla megi upplýsingum um mannréttindi, sjálfbærni og frið á þann hátt að það efli virka þátttöku, félagslega tengslamyndum og lýðræðislega upplifun allra í skólanum.

01/01/2026
31/12/2028
tim-mossholder-zdV9ngtM0Sw-unsplash (1)
Að efla nám og kennslu með markvissri leiðsögn og ráðgjöf
Markmið rannsóknarinnar er að dýpka skilning á því hvort og þá hvernig starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf geti stuðlað að auknum gæðum náms og kennslu í leik-, grunn- og framhaldsskólum á Íslandi.

01/01/2026
Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana
Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana: Að virkja gagnrýna hugsun og ábyrga þátttöku í lýðræðissamfélagi
Markmið rannsóknarinnar er annars vegar að auka skilning og þekkingu á árangursríkum starfsháttum framhaldsskólakennara sem stunda gagnrýna kennslufræði og leggja áherslu á að þjálfa nemendur í gagnrýninni hugsun og umræðu um samfélagsleg málefni, og þeim áskorunum sem mæta þeim í því verkefni. Hins vegar að miðla þekkingu til fagfólks og skapa vettvang til samtals og starfsþróunar.

01/01/2026
Stafræn tækni STÍL
Stafræn tækni í lífi barna (STÍL)
Rannsóknin byggir á fræðum um bernsku sem félagslegt og menningarlegt fyrirbæri og á réttindum barna til þátttöku og áhrifa samkvæmt Barnasáttmálanum. Fyrri rannsóknir hafa að mestu beinst að eldri grunnskólabörnum, en þær sýna að notkun barna á stafrænni tækni er orðin mikil við tíu ára aldur. Það skortir því aukna þekkingu á því hvernig yngri börn skilja snjalltæki og snjallforrit og hvernig þau beita slíkri tækni í leik, námi og daglegu lífi.

01/01/2026
stem-t4l-J1nc-LH0iBE-unsplash (1)
Framtíð grunnskóla á Íslandi á tímum spunagreindar: Athafnakostir, læsi og hæfni kennara
Verkefnið þróar gagnreyndan og framsýnan hæfniramma fyrir notkun gervigreindar í íslenskum grunnskólum. Þar sem umbreytandi spunagreind hefur áhrif á kennslu, námsmat og daglegt nám, þarf skólakerfið skýra leiðsögn um þá þekkingu, leikni og faglegu dómgreind sem styður við ábyrga og gagnrýna notkun hennar.
01/01/2026
"Ég vil bara að einhver elski mig"
“Ég vil bara að einhver elski mig” Kynverund, ástarkraftur og gagnkynja ástir meðal ungs fólks í jafnréttisparadís
Losnað hefur um hefðir og viðmið tilhugalífs og rómantískra ástartengsla og ungu fólki er almennt frjálst að njóta nándar og kynlífs á ástarvettvangi án væntinga um tilfinningatengsl eða skuldbindingu til lengri tíma. Rannsókn þessi snýr að míkró-pólitískum valdatengslum í gagnkynhneigðu tilhugalífi kynjanna og markmið erindisins er að kanna hvernig tiltekin sannleiksveldi móta val og gerendamátt kynjanna þegar kemur að iðkun og samningum á ástarvettvangi.

01/01/2026
nahrizul-kadri-OAsF0QMRWlA-unsplash
AI-deDICate 
Markmið verkefnisins er að styðja starfandi kennara og kennaranema, sem og nemendur og foreldra, við að nota gervigreind og menntatækni á ábyrgan hátt í kennslu. Áhersla er á að fræða nemendur um hvernig nýta má gervigreind til að efla nám þeirra og öryggi í notkun tæknilausna en einnig til að stuðla að inngildingu og samstarfi allra nemenda.

01/12/2025
30/11/2028
pexels-yankrukov-8612988
TEACH-RIGHTS
Verkefnið felst í greiningu á kennaramenntun í þremur samstarfslöndum með tilliti til réttinda barna og lýðræðislegrar borgaravitundar. Unnið verður reglulega með nemendum og fræðafólki í námslotum yfir verkefnatímabilið, með það að markmiði að efla skilning á gildi og mikilvægi réttindamiðaðrar nálgunar í námi ungra barna.

14/12/2025
13/12/2027
pexels-kelly-33621854
ClimateAMBASSADORS
Supporting digital innovation, green transition and civic engagement in HE through interdisciplinary living labs to fight climate change and promote sustainable development

01/12/2025
31/12/2028
pexels-ann-h-45017-2210543
Aðferðir leiklistar í námi grunnskólabarna í ljósi fjölmenningar
Markmið rannsóknarinnar er að öðlast dýpri skilning á aðferðum leiklistar er varðar fjölmenningarkennslu í grunnskólum. Nálgun rannsóknar verður út frá þeirri hugsun að nota megi aðferðir leiklistar til að nálgast nám og kennslu fjölbreyttra nemendahópa þar sem unnið er út frá reynslu nemenda og þeir verða virkir þátttakendur.

01/01/2025
Hæglæti
Norrænt samstarfsnet um hæglæti í uppeldi og menntun
Verkefnið Reclaiming Slow Nordic ECEC network miðar að því að bregðast við auknu álagi og hraða í menntun og uppeldi og streitu kennara með því að efla hæglætismenntun og norræn gildi í leikskólastarf og í kennaramenntun. Markmið netsins er að stuðla að sjálfbærri, barnmiðaðri og ígrundandi starfsmenningu í leikskólum og í háskólum. Lögð verður áhersla á nýsköpun í kennaramenntun.

01/06/2025
01/06/2028
pexels-alex-green-5691865
EMPOWER
EMPOWER verkefnið miðar að því að taka á kynjamisrétti í menntun í upplýsingatækni (UT). Markmiðið er að auka áhuga og þátttöku stúlkna í upplýsingatæknigeiranum með því að innleiða tvö lykilinngrip: þjálfun í kynjafjölbreytileika fyrir kennara og fyrirmyndakynningar undir forystu farsæla kvenkyns UT-sérfræðinga.

01/04/2025
31/03/2028
Mynd Staða leiklistakennarans
Staða leiklistarkennarans í grunnskólum á Íslandi
Markmið rannsóknarinnar er tvíþætt. Annars vegar að skoða starfsþróun þeirra leiklistarkennara sem hafa útskrifast sem leiklistarkennarar frá HÍ og hins vegar að fá betri innsýn í leiklistarkennslu á vettvangi. Það er mikilvægt að skoða þetta tvennt saman með uppbyggingu kennaramenntunar í huga.

08/09/2025