Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana

Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana: Að virkja gagnrýna hugsun og ábyrga þátttöku í lýðræðissamfélagi

Framhaldsskóli á tímum samfélagslegra áskorana: Að virkja gagnrýna hugsun og ábyrga þátttöku í lýðræðissamfélagi

Það að þjálfa nemendur í gagnrýninni hugsun og efla borgaralega hæfni þeirra, meðal annars með umræðu um álitamál í samfélaginu, þykir sérstaklega mikilvægt nú á tímum ýmissa samfélagslegra ógna og skautunar í samfélaginu. Þrátt fyrir það sýna rannsóknir að kennarar veigra sér oft við kennslu af því tagi vegna þess að þeim finnst þeir ekki nægilega vel undirbúnir og vegna hræðslu við viðbrögð nemenda og foreldra. Lítið er vitað um reynslu og upplifun framhaldsskólakennara á Íslandi af þeim leiðum sem þeir fara til að þjálfa nemendur í gagnrýninni hugsun og umræðu um samfélagsleg málefni, þeim áskorunum sem þeir mæta og hvers konar stuðnings er þörf.

Í þessu ljósi eru markmið rannsóknarinnar tvíþætt.

  • Annars vegar að auka skilning og þekkingu á árangursríkum starfsháttum framhaldsskólakennara sem stunda gagnrýna kennslufræði og leggja áherslu á að þjálfa nemendur í gagnrýninni hugsun og umræðu um samfélagsleg málefni, og þeim áskorunum sem mæta þeim í því verkefni.
  • Hins vegar að miðla þekkingu til fagfólks og skapa vettvang til samtals og starfsþróunar, til að styðja við faglegt sjálfstæði kennara þegar kemur að þróun á kennsluháttum sem ætlað er að efla gagnrýna hugsun nemenda og ábyrga þátttöku í umræðu um samfélagsleg málefni. Sömuleiðis að skapa mikilvæga þekkingu mikilvæga þekkingu fyrir háskólastofnanir sem mennta framhaldsskólakennara.

Fjölbreyttum gögnum verður safnað meðal bæði kennara- og nemenda og námsefni kortlagt.

 

Verkefnið er styrkt af Menntarannsóknasjóði árið 2026. 

Efnisorð: Framhaldsskóli, Gagnrýnin hugsun, Gagnrýnin kennslufræði, Lýðræði, Samfélagslegar áskoranir

Rannsakendur
Valgerður S Bjarnadóttir
Tímabil rannsóknar
Frá: 1. janúar 2026
Styrktaraðilar