"Ég vil bara að einhver elski mig"

“Ég vil bara að einhver elski mig” Kynverund, ástarkraftur og gagnkynja ástir meðal ungs fólks í jafnréttisparadís

“Ég vil bara að einhver elski mig” Kynverund, ástarkraftur og gagnkynja ástir meðal ungs fólks í jafnréttisparadís

Losnað hefur um hefðir og viðmið tilhugalífs og rómantískra ástartengsla og ungu fólki er almennt frjálst að njóta nándar og kynlífs á ástarvettvangi án væntinga um tilfinningatengsl eða skuldbindingu til lengri tíma.

Rannsókn þessi snýr að míkró-pólitískum valdatengslum í gagnkynhneigðu tilhugalífi kynjanna og markmið erindisins er að kanna hvernig tiltekin sannleiksveldi móta val og gerendamátt kynjanna þegar kemur að iðkun og samningum á ástarvettvangi. Gögnin er m.a. greind með hliðsjón af kenningum Önnu Guðrúnar Jónasdóttur þar sem ástin; sú styrkjandi og endurnærandi orka sem gefin er og þegin í einkarýminu, mótar almennan gerendamátt einstaklinga og því hefur misskipting hennar víðtæk áhrif og afleiðingar langt út fyrir upprunalegt samhengi. Greiningin byggir á 24 hálf-stöðluðum viðtölum við ungt fólk sem allt hefur reynslu af gagnkynhneigðri iðkun. Frumgreining bendir til að ungar konur mæti frekar mótsagnakenndum væntingum um að vera ástarveitur í skuldbundnu ástarsambandi á sama tíma og þeim er gert að neyta og njóta á ástarmarkaði án væntinga um tengsl eða gagnkvæmni. Flestar þeirra hafa upplifað meðvitað og ómeðvitað einhvers konar arðrán á ástarkrafti og leita ýmissa leiða til þess að vernda sig frá því. Ungir karlar upplifa frekar að stækka og styrkjast sem sjálfsvera í gegnum samskipti sín við margar konur. Þannig fellur sjálfsverustaða þeirra betur að viðmiðum nýfrjálshyggjunnar sem kallar á sífellda betrun sjálfsins í gegnum frjálsa neyslu á ástarmarkaði.

Verkefnið hlaut doktorsnemastyrk Rannís 2026.

Rannsakendur
Unnur Edda Garðarsdóttir
Ólafur Páll Jónsson
Berglind Rós Magnúsdóttir
Tímabil rannsóknar
Frá: 1. janúar 2026
Styrktaraðilar