AI-deDICate
Gervigreind í kennslufræði fyrir fjölbreytileika, inngildingu og rafrænt samstarf í skólum
AI-DedICate er skammstöfun fyrir Erasmus+ verkefni sem á ensku heitir Artificial Intelligence Pedagogy for Inclusion, Diversity and eCollaboration in Schools. Verkefnið beinist að tækifærum og áskorunum sem fylgja stafrænni umbreytingu í menntun barna og unglinga.
Markmið verkefnisins er að styðja starfandi kennara og kennaranema, sem og nemendur og foreldra, við að nota gervigreind og menntatækni á ábyrgan hátt í kennslu. Áhersla er á að fræða nemendur um hvernig nýta má gervigreind til að efla nám þeirra og öryggi í notkun tæknilausna en einnig til að stuðla að inngildingu og samstarfi allra nemenda.
Í gegnum samstarf háskóla, grunn- og framhaldsskóla, menntastofnana og tækniaðila víða að í Evrópu þróar AI-DedICate nýstárlegar lausnir í menntun sem vonir standa til að geti nýst jafnt á grunnskóla- sem framhaldsskólastigi. Lausnirnar – námsefni, leikir og námskeið – eru hannaðar með hliðsjón af raunverulegum þörfum í kennslustofum og miða að því að styðja við árangursríka innleiðingu gervigreindar í skólastarf.
Markmið
Það sem við viljum ná fram er að:
- leggja fram kennslufræðilegan og tæknilegan ramma um gervigreind fyrir fjölbreytileika, inngildingu og rafrænt samstarf, með áherslu á siðferðilegan umgjörð um notkun gervigreindar og stafrænna verkfæra;
- efla skilning kennara, kennaranema og nemenda á því að menntatækni, gervigreind og leikjavæðing geti nýst sem námstæki en ekki eingöngu til afþreyingar;
- stuðla að skilningi á og viðurkenningu á menningarlegum fjölbreytileika, með stafrænum verkfærum.
Framkvæmd
Þetta er í vinnslu:
- Könnun meðal nemenda.
- Mótun kennslufræðilegs og tæknilegs ramma.
- Gerð gagnvirks námsefnis.
- Hönnun blandaðs námsborðspils með gagnauknum veruleika (AR).
- Þróun námsumsjónarkerfis (LMS) með gervigreindareiginleikum.
Afrakstur
Uppskeran, ef allt gengur eftir, verður þessi:
- AI-deDICate aðferðafræðin;
- námsumsjónarkerfi (LMS) með gervigreindareiginleikum;
- gagnvirkt náms- og þjálfunarefni byggt á meginreglum fjarkennslu;
- blandað námsborðspil með gagnauknum veruleika (AR);
- blandað námskeið fyrir kennara;
- efling á ábyrgri og siðferðilegri notkun gervigreindar;
- eTwinning-verkefni;
- efling stafrænnar hæfni kennara og nemenda, færni til inngildingar, skapandi náms og meðvitundar um menningarlegan fjölbreytileika.
English:
Objectives
What we would like to achieve are:
-propose an Integrated Pedagogical and Technological Framework about Human Centric Artificial Intelligence for Diversity, Inclusion and eCollaboration,stress the ethical framework for the use of AI and digital tools
-enhance Teachers/ Student-Teachers/Pupils understanding that Educational Technologies, AI & Gamification can be used as a learning tool and not only for entertainment.
-promoting understanding and accepting cultural diversity throufh digital tools
Activities
1. survey in the pupils population 2.Coform the Pedagogical and Technological Framework about Human Centric methodology 3. Develop Interactive Educational Material 4. Develop a Blended Learning Board Game with AR features 5. develop an LMS with AI features 6. design and implement a Training Courses for in & pre service teachers and parents based on Principles of Distance Education, 7. eTwinning projects 8. Dissemination & Networking Activities 9. Evaluation Activities 10 Project Management
Impact
The most important results of the project are: 1. The HC AI- deDICate methodology, 2. an LMS with AI features 3.
Interactive educational and training materials based on distance learning principles 4. A Blended Learning Board Game with AR, 5.
Blended Training Course for teachers 6.promote responsible and etical use of AI, 7 eTwinning projects &Pupils’ digital stories using AI apps 8.
enhance teachers/students digital skills, inclusive skills, creativity and cultural diversity awareness.
