Stafræn tækni STÍL

Stafræn tækni í lífi barna (STÍL)

Stafræn tækni í lífi barna (STÍL)

Verkefnið fjallar um stafræna tækni í lífi barna og leggur megináherslu á raddir og reynslu 4–9 ára barna, auk sjónarmiða kennara sem móta það stafræna umhverfi sem börnin eru þátttakendur í.

Rannsóknin byggir á fræðum um bernsku sem félagslegt og menningarlegt fyrirbæri og á réttindum barna til þátttöku og áhrifa samkvæmt Barnasáttmálanum. Fyrri rannsóknir hafa að mestu beinst að eldri grunnskólabörnum, en þær sýna að notkun barna á stafrænni tækni er orðin mikil við tíu ára aldur. Það skortir því aukna þekkingu á því hvernig yngri börn skilja snjalltæki og snjallforrit og hvernig þau beita slíkri tækni í leik, námi og daglegu lífi.

Rannsóknin nýtir eigindlegar aðferðir sem henta vel fyrir ung börn: ljósmyndakveikjur til þess að skilja þekkingu barna og reynslu af notkun snjalltækja og media go-along þar sem börn sýna hvernig þau nota valin snjallforrit og tæki í raunverulegum aðstæðum. Að auki verða tekin viðtöl við kennara til að greina hvernig þeir lýsa tilgangi, tækifærum og áskorunum tengdum notkun stafrænnar tækni í skólastarfi.

Með því að sameina þessar aðferðir varpar rannsóknin ljósi á hvernig börn skapa merkingu í eigin tæknimenningu, fremur en að líta á þau sem passíva notendur eða þolendur stafræns umhverfis. Slík innsýn er lykilatriði til að þróa kennsluhætti, leiðsagnarsefni og stefnu sem byggja á raunverulegum þörfum og reynslu barna og styðja við örugga, skapandi og gagnrýna tækninotkun í leik- og grunnskólum.

Verkefnið hlaut styrk frá Menntarannsóknasjóði 2026

Efnisorð: Bernskurannsóknir, Leiðsögn um stafrænan miðil, Ljósmyndakveikjur, Sjónarmið barna, Sjónarmið kennara, Stafræn tækni

Rannsakendur
Sara Margrét Ólafsdóttir
Svava Pétursdóttir
Tengiliður við fjölmiðla
Sara Margrét Ólafsdóttir
Tímabil rannsóknar
Frá: 1. janúar 2026
Styrktaraðilar