Barnasáttmálinn innleiddur í leikskólastarf
Markmið þessarar rannsóknar, sem gerð var í fimm leikskólum í Reykjavík, beindist að því að varpa ljósi á reynslu starfsfólks af innleiðingu ákvæða samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins (Barnasáttmálans) í daglegt starf og hvernig sú vinna mótaði viðhorf, starfshætti og skipulag leikskólanna með hliðsjón af réttindum barna