Rannsóknir á Menntavísindasviði

Leitarniðurstöður

8 rannsóknir fundust í flokknum Leikskólabörn.
Að skapa þekkingu saman
Að skapa þekkingu saman – Sjálfbær leikskólastarfsemi og stjórnsýsla á Norðurlöndum
Á Norðurlöndum hefur skapast þörf fyrir að efla handleiðslu, leiðsögn og mat á leikskólastarfi til að styðja við framkvæmd laga og reglna, ásamt því að bæta gæði starfsins. Markmið verkefnisins er að skapa sjálfbæra þekkingu og verkfæri til að styðja við stjórnsýslu og eftirlit með leikskólastiginu. Þetta er gert með því að miðla reynslu og beita nýstárlegum, aðferðum á vinnustofum og í rannsóknum.

01/09/2024
31/08/2026
LANISskimunarlisti_Featured
LANIS skimunarlisti
Eins og sakir standa eru ekki til áreiðanleg og réttmæt skimunartæki sem foreldrar eða leikskólakennarar geta nýtt til kanna málfærni barna á aldrinum þriggja ára. LANIS skimunarlistinn fyrir frávikum í tal og málþroska hefur verið í þróun um nokkurt skeið og hafa forprófanir gefið til kynna að listinn er áreiðanlegur og réttmætur.

01/01/2024
01/01/2026
alexander-andrews-zw07kVDaHPw-unsplash
World of Words in Iceland / Orðaheimurinn á Íslandi
Markmið rannsóknarinnar er að auka færni leikskólabarna í íslensku máli með sérstakri áherslu á fjöltyngd börn. Sú íhlutunaraðferð sem rannsökuð verður er byggð á bandarísku kennsluefni, World of Words, er kallast Orðaheimurinn á íslensku.

01/01/2021
31/12/2023
Stilla
Stilla – hæglátt leikskólastarf
Meginmarkmið verkefnisins er að þróa hæglátt leikskólastarf og dýpka þannig þekkingu og skilning okkar á upplifun barna á tíma í leikskólum. Stuðst verður við aðferðir starfendarannsókna og uppeldisfræðilegar skráningar til að skrá ferlið. Tilgangur þess er að auka þekkingu starfsfólks, foreldra og barna á námi barna og þeim tíma sem börn þurfa til að kanna heiminn og prófa hugmyndir sínar.

01/09/2022
31/08/2025
Leikur, nám og gleði
Leikur, nám og gleði
Meginmarkmið verkefnisins var að varpa ljósi á sameiginlega leikheima barna og leikskólakennara í fjórum leikskólum á Íslandi. Rannsóknin fór fram í fjórum leikskólum í Reykjavík í samstarfi við fjóra leikskóla í Kungsholmen í Stokkhólmi og Stokkhólmsháskóla.
01/02/2022
01/01/2026
Barnasáttmálinn innleiddur í leikskólastarf
Barnasáttmálinn innleiddur í leikskólastarf
Markmið þessarar rannsóknar, sem  gerð  var  í  fimm  leikskólum  í  Reykjavík,  beindist  að  því  að  varpa  ljósi  á  reynslu  starfsfólks  af  innleiðingu  ákvæða  samnings  Sameinuðu  þjóðanna  um  réttindi  barnsins  (Barnasáttmálans)  í  daglegt  starf  og  hvernig  sú  vinna  mótaði  viðhorf,  starfshætti  og  skipulag  leikskólanna  með  hliðsjón  af réttindum barna
01/01/2022
31/12/2025
pexels-mccutcheon-1148998
BE-In – Building Partnership with Parents in Inclusive ECEC
Be-In verkefnið miðar að því að styrkja hæfni fagfólks og stjórnenda í leikskólum til að vinna með börnum með sérþarfir og byggja upp samstarf við foreldra þeirra.

01/01/2022
28/02/2025
Be-Child_Featured
BE-CHILD – Be Inclusive towards inclusion of children with special needs and their parents in ECEC –
The aim of the BE-CHILD project is to support ECEC educators’ in working with the development of socio emotional competences (SEC) of pre-school children.

01/12/2019
31/10/2022