Reynsla og upplifun ungs fólks á Íslandi af einelti sem einkennist af kynþátta- og menningarfordómum

Reynsla og upplifun ungs fólks á Íslandi af einelti sem einkennist af kynþátta- og menningarfordómum

Rannsóknin er eigindleg viðtalsrannsókn sem byggir á samtölum við ungt fólk á aldrinum 18 – 25 ára sem hefur reynslu og upplifun af einelti sem einkennist af kynþátta- og menningarfordómum. Markmiðið með rannsókninni er að bera kennsl á birtingarmyndir, umfang og afleiðingar eineltis sem byggir á kynþáttahyggju og/eða fordómum gagnvart þjóðernisuppruna, menningu og/eða trúarbrögðum.

Í ljósi vaxandi þjóðernishyggju, útlendingaandúðar, kynþáttahyggju, menningarfordóma og múslimahaturs (e. islamophobia) víða um heim hefur fræðasamfélagið lagt aukna áherslu á rannsóknir á einelti sem einkennist af fordómum (e. bias-based bullying), staðalmyndum (e. sterotype) og stimplun (e. stigma) á síðustu árum.

Einelti í garð barna og unglinga sem tilheyra minnihlutahópum og er drifið áfram af kynþátta- og menningarfordómum er sérstakt áhyggjuefni vegna þeirra alvarlegu afleiðinga sem slíkt einelti getur haft í för með sér, sérstaklega vegna þeirrar þróunar og mótunar sem á sér stað á þessum aldri, meðal annars á sjálfsmynd einstaklinga sem mótast oft út frá þeim þáttum sem slíkt einelti beinist að. Þá sýna rannsóknir fram á að slíkt einelti getur meðal annars haft áhrif á líkamlega og andlega heilsu og er til þess fallið að ýta undir félagslega einangrun, einmannaleika, jaðarsetningu og jafnvel samfélagslega skautun.

Rannsóknir benda í auknum mæli til þess að ungt fólk á skólaaldri sem tilheyrir minnihlutahópum séu þolendur eineltis sem byggir á kynþáttahyggju og/eða menningarfordómum. Þá benda rannsóknir til þess að kennarar og annað starfsfólk í skóla- og frítímastarfi eru ekki alltaf í stakk búið til þess að takast á við slíkt einelti. Þessi rannsókn er tilraun til þess að bæta úr því í íslensku samfélagi.

Rannsóknin er fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er mikilvæg viðbót við rannsóknir á fordómum, jaðarsetningu og einelti. Með rannsókninni er sköpuð ný þekking á sviði eineltisfræða sem hægt er að nýta til frekari þekkingaröflunar og rannsókna og móta og þróa verklag og verkfæri fyrir forvarnir og inngrip í slíkt einelti á vettvangi skóla- og frítímastarfs í þeim tilgangi að sporna gegn því og valdefla fagfólk til þess að grípa inn í slík mál.

Verkefnið tilheyrir einnig Rannsóknastofu í tómstundafræðum

Rannsóknin var styrtk af Styrktarsjóði Margrétar og Bents Schevings Thorsteinssonar og Þróunarsjóði innflytjendamála