Reynsla og upplifun ungs fólks á Íslandi af einelti sem einkennist af kynþátta- og menningarfordómum
Rannsóknin er eigindleg viðtalsrannsókn sem byggir á samtölum við ungt fólk á aldrinum 18 – 25 ára sem hefur reynslu og upplifun af einelti sem einkennist af kynþátta- og menningarfordómum. Markmiðið með rannsókninni er að bera kennsl á birtingarmyndir, umfang og afleiðingar eineltis sem byggir á kynþáttahyggju og/eða fordómum gagnvart þjóðernisuppruna, menningu og/eða trúarbrögðum