Á síðustu áratugum hafa skólavalstefnur orðið fyrirferðamiklar þar sem árangur á afmörkuðu sviði ræður alfarið aðgengi nemenda að bóknámsbrautum í tilteknum skólum. Skoðað er hvernig frjálst „val“ nemenda, sem er eitt af lykilhugtökum ríkjandi menntastrauma, markast af námslegum, félagslegum og landfræðilegum þáttum og hvernig slíkt „val“ endurspeglar og á sinn þátt í að endurframleiða félagslegt stigveldi. Rannsóknin felst að hluta til í samanburði við framhaldsskóla í Helsinki með það að markmiði að greina stofnanahátt aðgangsstífra bóknámsskóla á Íslandi og í Finnlandi út frá bakgrunni og reynslu nemenda og skoða vegferð þeirra milli framhalds- og háskólastigsins.
Rannsóknarspurningar
- Hvernig þróast og birtist aðgreining og stigveldi milli nemendahópa og skólastofnana þegar valið er bóknám til stúdentsprófs í íslenska framhaldsskólakerfinu, á tímum samkeppni og alþjóðavæðingar?
- Hvernig markast val og framtíðaráætlanir nemenda af menningarlegum, landfræðilegum, félagslegum og námslegum þáttum?
- Mótun og sköpun sjálfsmyndar ( identity formation ): Hvernig skilgreina nemendur sig og hugmyndir sínar um aðra unglinga?