Heilsueflandi vinnustaðamenning
Í þessari rannsókn er sjónum beint að áherslum skólastjóra í mótun og viðhaldi heilbrigðrar vinnustaðamenningar í skólum. Þátttakendur í rannsókninni voru skólastjórar í fjórum leikskólum og fjórum grunnskólum sem komu vel út á þáttum heilbrigðrar vinnustaðamenningar, starfsánægju og vellíðanar kennara í niðurstöðum starfsmannakannana árið 2023 (Sameyki, e.d.; Skólapúlsinn, e.d.). Rannsókninni er ætlað að auka þekkingu á hvernig skólastjórar í leik- og grunnskólum miðla sameiginlegum gildum, efla traust og skapa starfsumhverfi sem verndar kennara gegn álagi og styður faglegt öryggi. Með því að beina sjónum að þeim skólum sem hafa sýnt fram á heilbrigða vinnustaðamenningu er von höfunda að niðurstöður rannsóknarinnar varpi ljósi á þær leiðir sem stjórnendur fara til að byggja upp heilbrigt starfsumhverfi. Niðurstöðurnar geta nýst skólastjórum og sveitarfélögum í þróun vinnustaðamenningar sem eflir vellíðan, ábyrgð og fagmennsku kennara og annars starfsfólks. Tilgangur rannsóknarinnar var að auka skilning á hvernig skólastjórar í leik- og grunnskólum stuðla að mótun og viðhaldi heilbrigðrar vinnustaðamenningar. Lögð var áhersla á að greina hvaða þættir í forystu, samskiptum og skipulagi skipta mestu máli í daglegri framkvæmd og hvernig stjórnendur skapa umhverfi sem styður faglegt öryggi, vellíðan og sameiginlega sýn starfsfólks.
Rannsóknin var unnin árið 2024 – 2025
