Borgaravitund

Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum

Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda.

Menntun til hnattrænnar borgaravitundar í íslenskum UNESCO-framhaldsskólum: Efling náms- og félagsumhverfis með þátttöku kennara og nemenda

Meginmarkmið verkefnisins er að kanna með hvaða hætti hnattræn borgaravitund birtist í stefnu og starfi íslenskra UNESCO framhaldsskóla. Í samvinnu við kennara og nemendur leitum við svara við því hvaða alþjóðlegu áskorunum er mikilvægast að mæta í sameiningu og hvernig miðla megi upplýsingum um mannréttindi, sjálfbærni og frið á þann hátt að það efli virka þátttöku, félagslega tengslamyndum og lýðræðislega upplifun allra í skólanum. 

Verkefnið kannar með hvaða hætti stefna og starf UNESCO framhaldsskóla á Íslandi endurspeglar umræðu um mannréttindi, sjálfbærni og frið. Í verkefninu vinna kennarar og rannsakendur í sameiningu að þróun kennslufræðilegrar nálgunar sem styður við lýðræðislega þátttöku nemenda, og félagslega tengslamyndun. Rannsóknin fer fram á tímabilinu 2026 – 2028 og er unnin í samvinnu við Félag SÞ á Íslandi sem heldur utan um vinnustofur kennara og nemenda.  Niðurstöður verkefnisins nýtast í rauntíma inn í kennslu og til eflingar á náms- og félagsumhverfi nemenda en verða einnig þegar fram í sækir hluti af stærra samanburðarverkefni sem snýr að útfærslu UNESCO skóla um allan heim á heimsmarkmiði 4.7. Rannsóknaraðilar frá Japan, Englandi og Írlandi koma að verkefninu og munu m.a. leiða fyrstu vinnustofur kennara skólaárið 2026-2027.  

 

Rannsóknin hlaut styrk úr Menntarannsóknasjóði 2025.

Rannsakendur
Eva Harðardóttir
Helgi Þorbjörn Svavarsson
Guðrún Birna Guðmundsdóttir
Karen Pashby
Joanne O’Flaherty
Tengiliður við fjölmiðla
Samstarfsaðilar
Félag Sameinuðu Þjóðanna á Íslandi
Tímabil rannsóknar
Frá: 1. janúar 2026
Til: 31. desember 2028
Styrktaraðilar