Heildarsýn og umbætur í kennaramenntun: Framþróun fyrir íslenskt menntakerfi

Heildarsýn og umbætur í kennaramenntun: Framþróun fyrir íslenskt menntakerfi.

Tilgangur rannsóknarverkefnisins er að kanna með heilstæðum hætti inntak grunnskólakennaranáms á Íslandi. Verkefnið veitir mikilvæga sýn á undirbúning kennara á landsvísu sem og mótar og prófar aðferðir í kennaramenntun sem tengja saman fræði og starf með árangursríkum hætti.

Gagnrýni hefur komið fram á kennaramenntun fyrir skort á samhengi innan námsins og skort á tengslum milli námskeiða í kennaranámi og starfs á vettvangi. Alþjóðlegar rannsóknir á kennaramenntun benda til þess að lykilatriði í árangursríkum undirbúningi fyrir kennarastarfið séu tækifæri kennaranema til að æfa og læra aðferðir sem byggja á raunverulegu starfi kennara í skólastofu.

Því leggja rannsakendur og stefnumótendur um allan heim í auknum mæli áherslu á að móta aðferðir í kennaramenntun sem brúa bilið milli fræða og starfs. Íslenska skólakerfið stendur frammi fyrir nokkrum brýnum áskorunum, bæði vegna kennaraskorts og vegna slakrar frammistöðu nemenda í alþjóðlegum könnunum og því er mikilvægt að huga að gæðum náms og kennslu.

Þrátt fyrir umfangsmiklar breytingar á íslenskri kennaramenntun á síðustu tveimur áratugum hafa fáar rannsóknir verið gerðar á inntaki kennaranáms og undirbúningi kennaranema fyrir starfið. Það er því brýn þörf á rannsóknum á íslenskri kennaramenntun og lykilstoðum hennar sem undirbúa væntanlega kennara fyrir kennarastarfið.

Tilgangur rannsóknarverkefnisins er að kanna með heilstæðum hætti inntak grunnskólakennaranáms á Íslandi. Verkefnið veitir mikilvæga sýn á undirbúning kennara á landsvísu sem og mótar og prófar aðferðir í kennaramenntun sem tengja saman fræði og starf með árangursríkum hætti.

Rannsakendur
Berglind Gísladóttir (PI)
Anna Kristín Sigurðardóttir
Amalía Björnsdóttir
Svava Pétursdóttir
Birna Svanbjörnsdóttir
Kirsti Klette
Inge Staal
Samstarfsaðilar
Háskóli Íslands
Háskólinn á Akureyri
Oslóarháskóli
Tímabil rannsóknar
Frá: 31. janúar 2024
Til: 31. desember 2027
Styrktaraðilar