Að efla nám og kennslu með markvissri leiðsögn og ráðgjöf

Heildstæð íhlutunarrannsókn í leik-, grunn- og framhaldsskólum
Að efla nám og kennslu með markvissri leiðsögn og ráðgjöf. Heildstæð íhlutunarrannsókn í leik-, grunn- og framhaldsskólum
Markmið rannsóknarinnar er að dýpka skilning á því hvort og þá hvernig starfstengd leiðsögn og kennsluráðgjöf geti stuðlað að auknum gæðum náms og kennslu í leik-, grunn- og framhaldsskólum á Íslandi.
Rannsóknin leitast við að greina hvaða aðferðir og leiðir hafa áhrif á faglega þróun kennara og árangur nemenda. Jafnframt er markmiðið til lengri tíma að kanna hvort starfstengd leiðsögn geti dregið úr kulnun kennara og minnkað líkur á brotthvarfi úr starfi, í þeim tilgangi að efla starfsánægju og tryggja festu kennara í starfi.
Rannsóknin byggir á blönduðum aðferðum og gögnum sem safnað er yfir 18 mánaða tímabil. Gögnin spanna stefnumótandi skjöl, viðtöl við hagaðila, skólastjórnendur, mentora og leiðsagnarþega (kennaranema, nýliða í kennslu og reynda kennara), auk myndbandsupptaka af leiðsagnarsamtölum sem byggja á aðferðum QUINT rannsóknarinnar og er þeim ætlað að meta gagnkvæm samskipti mentora og leiðsagnarþega. Hugmyndin er að greina árangursríkar leiðsagnaraðferðir sem stuðla að vellíðan kennara, draga úr kulnun og styrkja starfsfestu, ásamt því að efla samstarfsmenningu í skólum.
Niðurstöður munu nýtast við stefnumótun, stuðla að sjálfbærum leiðsagnarkerfum og bæta gæði náms og kennslu. Verkefnið mun einnig gefa af sér ný verkfæri sem mótast í samstarfi við hagaðila. Þá er niðurstöðunum ætlað að vera leiðsegjandi um hagnýt úrræði fyrir stefnumótandi aðila, skóla og kennaramenntun.
Rannsakendur
Guðrún Ragnarsdóttir
Tengiliður við fjölmiðla
Guðrún Ragnarsdóttir
Tímabil rannsóknar
Frá: 1. janúar 2026
Styrktaraðilar