Fókus á fjölskyldur í réttlátum umskiptum

Rannsóknarverkefnið Fókus á fjölskyldur í réttlátum umskiptum varpar ljósi á lykilhlutverk íslenskra fjölskyldna í loftslagsaðgerðum og sjálfbærni.

Markmiðið er að skilja hvernig réttlát umskipti geta orðið að veruleika í daglegu lífi fólks og hvernig hugmyndir um fjölskyldu, samfélag og náttúru birtast bæði í menningu og reynslu fólks um land allt.

Utsa Mukherjee, dósent í menntavísindum við Brunel-háskóla, stýrir rannsókninni. Verkefnisstjórar hérlendis eru Auður Aðalsteinsdóttir, rannsóknarlektor og forstöðumaður Rannsóknaseturs HÍ í Þingeyjarsveit, og Auður Magndís Auðardóttir, lektor í uppeldis- og menntunarfræði á Menntavísindasviði.

Verkefnið byggir á nánu samstarfi rannsakendafjölskyldna og stefnumótandi aðila. Með því að tengja fræðilega greiningu við reynsluheim fjölskyldna er skapaður vettvangur fyrir opið samtal og samvinnu sem getur lagt grunn að réttlátari og raunhæfari stefnumótun í loftslagsmálum.

Íslensk stjórnvöld stefna að því að gera Ísland að kolefnishlutlausu landi fyrir árið 2040, en á alþjóðavettvangi hefur áhersla verið lögð á að um réttlát umskipti sé að ræða og að fórnarkostnaði og ávinningi af loftslagsaðgerðum sé ekki misskipt. Í aðgerðum er oft litið fram hjá því lykilhlutverki sem fjölskyldueiningin gegnir í samfélaginu. Rannsóknarverkefnið kannar þennan mikilvæga hlekk í loftslagsaðgerðum hérlendis út frá þverfaglegu sjónarhorni.

Hug- og menntavísindi leiða hér saman krafta sína við að skapa nýja þekkingu. Annars vegar verða greindar íslenskar bókmenntir og kvikmyndir frá 1944 og til samtímans með það að markmiði að kanna þær hugmyndir sem þar birtast um samspil fjölskyldna, náttúru og umhverfisverndar. Hins vegar verður þetta sama samspil skoðað í samtímanum með 50 barnafjölskyldum um allt land. Gagnaöflunin með fjölskyldunum mun meðal annars fela í sér fjölskylduviðtöl, skapandi skrif barna og ungmenna og notkun fjölskylduljósmynda til að skapa umræður um réttlát umskipti og fjölskyldueininguna. Gögnum verður safnað með fjölskyldum um allt land þar sem aðstandendur rannsóknarinnar búast við að nálgun fjölskyldna á umhverfisvernd og sjálfbærni geti verið nokkuð ólík eftir því hvar á landinu þær búa.

Verkefnið er styrkt af The British Academy.

Styrkurinn kemur frá Knowledge Frontiers áætlun Bresku akademíunnar og gerir það kleift að ráða tvo rannsakendur til viðbótar. Annars vegar Rannveigu Ágústu Guðjónsdóttur, nýdoktor í uppeldis- og menntunarfræði, og hins vegar Angelu Snæfellsjökuls Rawlings menningarfræðing.

Knowledge Frontiers hefur það að markmiði að efla þátttöku breskra fræðimanna í alþjóðlegum verkefnum á sviði hug- og félagsvísinda undir formerkjum réttlátra umskipta. Sérstök áhersla er lögð á að styðja við verkefni sem vinna með tengsl sérfræðiþekkingar, almennrar þekkingar og stefnumótunar á alþjóðavísu.

Það er teyminu mikilvægt að niðurstöðurnar nýtist einnig í stefnumótun á sviði réttlátra umskipta hérlendis og því hafa verið mynduð tengsl við sveitarfélög og aðra stefnumótandi aðila hérlendis. Þau tengsl verða ræktuð og styrkt samhliða rannsóknarvinnunni til að tryggja samtal milli rannsakenda og þeirra sem starfa á sviði réttlátra umskipta.

 

Rannsakendur
Utsa Mukherjee
Auður Magndís Auðardóttir
Auður Aðalsteinsdóttir
Rannveig Ágústa Guðjónsdóttir
Angela Snæfellsjökuls Rawlings
Rannsóknarafurðir
Tímabil rannsóknar
Frá: 1. janúar 2025
Til: 31. desember 2028
Styrktaraðilar