Kennsluefni í stærðfræði: framboð á Norðurlöndum og þarfir framhaldsskóla
Verkefnið snýst um að kanna framboð á Norðurlöndunum á kennsluefni í stærðfræði fyrir framhaldsskóla, bera það saman og kanna hvort það henti íslenskum framhaldsskólum.
Hannaður verður rammi til samanburðarins og hann svo nýttur til gerðar viðtalsramma og spurningalista fyrir þarfir og skoðanir stærðfræðikennara í framhaldsskólum. Niðurstaðan verður val á kennsluefni sem hentar best fyrir íslenska framhaldsskóla.
Rannsóknin sprettur upp úr samstarfsverkefninu SamSTEM, samstarfsverkefni háskóla um eflingu STEM náms, https://samstem.hi.is/, sem er samstarfsverkefni HÍ, HA og HR og er markmið hennar að finna kennsluefni í stærðfræði fyrir framhaldsskóla sem hugsanlega mætti þýða yfir á íslensku. Þetta myndi bæta úr brýnni þörf sem framhaldsskólakennarar í stærðfræði hafa rætt um í mörg ár og hefur ítrekað komið fram á fundum SamSTEM hópsins með kennurum náttúrufræðibrauta á undanförnum árum.
Staða verkefnis:
- Hannaður hefur verið rammi og út frá honum kortlagðar sex mismunandi ritraðir frá Norðurlöndum.
- Unnið er að könnun sem lögð verður fyrir framhaldsskólakennara í stærðfræði. Kortlagningin felur í sér bæði efnisleg atriði og kennslufræðilega nálgun og vonir standa til að könnunin veiti nánari upplýsingar um þarfir framhaldsskólans.
- Ritraðirnar voru kynntar fyrir stærðfræðikennurum á Samstarfsdegi framhaldsskólanna sem haldinn var 27. febrúar 2026 í Verslunarskóla Íslands. Þar voru viðstaddir um 70 stærðfræðikennarar.
Verkefnið var styrkt af Menntarannsóknasjóði Mennta- og barnamálaráðuneytisins árið 2023 og stendur enn yfir.

