Markmið rannsóknarinnar er að afla þekkingar á því hvernig þrjú sveitarfélög hafa staðið að innleiðingu og framkvæmd laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna.
Fyrstu niðurstöður sýna að lög um farsæld barna frá 2021 hafa leitt til umtalsverðra breytinga á sveitarstjórnarstiginu. Nýtt verklag og þróunarverkefni sem útfærð hafa verið, sýna fram á að sjónarhorn á áskoranir barna eru fjölbreyttari og tækifærum fagfólks til að kynnast markmiðum og gildum hvers annars hefur fjölgað. Með lögunum hefur vettvangur frístundastarfs fengið stærra hlutverk sem hefur ljáð fagmennsku hans aukið vægi. Stjórnendur sveitarfélaganna telja lögin fagnaðarefni, enda hafi þau rutt úr vegi kerfislægum hindrunum sem um áratugaskeið hafa unnið gegn farsæld barna. Stjórnendur úr skólakerfinu leggja áherslu á að útfærsla laganna falli að hlutverki og menningu skólastarfs og allir stjórnendur eru gagnrýnir á seinagang í uppbyggingu bjargráða fyrir börn með fjölþættan vanda.
Með lögunum tekst fagfólk á við nýja verkaskiptingu og vinnubrögð og ný hlutverk tengliða og málstjóra. Niðurstöðurnar sýna að það reynir á nýjar hliðar fagmennsku, sveigjanleika og auðmýkt. Áskoranir eru fólgnar í því að hin nýju hlutverk eru túlkuð á ólíkan hátt, bæði af fagfólki en einnig stjórnvöldum. Stjórnendur á vettvangi sveitarstjórnarstigsins líta á áskoranir innleiðingarinnar sem lærdóms- og þróunarferli þar sem mótsagnir og merkingarsköpun takast á. Innleiðingarferlið reynir því ekki bara á tæknilega útfærslu, heldur einnig á viðhorf, dómgreind og menningu, sem og tilfinningalega- og siðferðilega þætti.
Rannsakendur unnu náið með sveitarfélögum sem sögulega búa yfir sterkri samstarfsmenningu og voru frumkvöðlar í innleiðingu laganna. Þrátt fyrir það, gengu þau öll í gegnum umfangsmiklar breytingar á skipulagi, verklagi og starfsháttum og má því margt læra af reynslu þeirra, hindrunum og árangri.
Staða rannsóknar: Rannsókn lýkur í lok árs 2026.
Hagnýtt gildi rannsóknar: Lærdómur fyrir stjórnvöld
- Farsældarlögin boða nýtt verklag, hlutverk og tæknilegar útfærslur en flóknustu þættir útfærslunnar lúta að fagmennsku, lausnaleit, dýpt samstarfs og samsköpun ólíkra faghópa
- Formlegir farvegir og þróunarverkefni hafa varpað ljósi á gildi og styrkleika frístundavettvangsins sem lykilaðila í farsæld barna og ungmenna
- Stuðningur og eftirfylgd verður að taka mið af ólíku hlutverki skóla og velferðarþjónustu
- Formleg, þverfagleg lausnaleit á 1. stigi þrepaskipts stuðnings, með þátttöku kennara og tómstundafræðinga, getur stutt við krefjandi dagleg störf þeirra.
- Framkvæmd laganna verður að hugsa til langrar framtíðar þegar hugað er að fjármögnun og öðrum stuðningi við innleiðinguna.
Meistaranemar: Díana Ívarsdóttir og Þórhildur Rafns Jónsdóttir
Rannsóknin var styrkt af Menntarannsóknasjóði árið 2023.
Smelltu á spjaldið hér fyrir neðan til að sjá það í betri upplausn:

