Börn og netmiðlar er víðtæk spurningakönnun sem Menntavísindastofnun framkvæmir í samstarfi við Fjölmiðlanefnd meðal grunn- og framhaldsskólanema á aldrinum 9-18 ára um allt land. Könnunin var fyrst lögð fyrir vorið 2021.
Niðurstöður eru kynntar í nokkrum skýrslum eftir viðfangsefni: tækjaeign og virkni á samfélagsmiðlum, kynferðisleg áreiti, netöryggi, klámáhorf, tölvuleiki og falsfréttir.
Gögn og efnisflokkar:
Gögnin eru frá árunum 2021, 2023 og niðurstöður fyrir 2025 verða aðgengilegar á haustmánuðum 2026. Gögnin frá fyrirlögnunum þremur er verið að undirbúa til vistunar í GAGNÍS.
Hér er um umfangsmikið gagnasafn að ræða sem er tilvalið fyrir áhugasama fræðimenn að nýta til fræðiskrifa.
Þau sem hafa áhuga geta sótt um aðgengi að gögnunum með því að hafa samband við Ingibjörgu Kjartansdóttur verkefnastjóra (ik@hi.is)
Helstu efnisflokkar sem hægt væri að skoða:
Samfélagsmiðlanotkun
Upplifun á netinu
Gervigreind
Tölvuleikir
Fréttalæsi, falsfréttir og fréttaforðun
Lykilorð og netöryggi
Klám
Kynferðisleg komment
Nektarmyndir
Auk nokkurra bakgrunsspurninga
Sjá nánar:

