Kennsluleiðbeiningar um íslenskan námsorðaforða: Listi yfir íslenskan námsorðaforða og verkefnahefti til að efla læsi grunnskólanema.
Markmið verkefnisins var að þróa kennsluleiðbeiningar byggðar á gagnreyndum aðferðum til að styðja grunnskólakennara við að vinna með námsorðaforða til að efla læsi nemenda. Verkefnið byggist á samstarfi fjögurra stofnanna, sem eru Menntavísindasvið og Hugvísindasvið Háskóla Íslands, Árnastofnun og Menntamálastofnun.
Mótuð var Málheild fyrir íslenskan námsorðaforða (MÍNO) með íslenskum samtímatextum og öllu námsefni grunnskólans frá þessari öld. MÍNO er fyrsta íslenska málheildin sem er sérstaklega ætluð fyrir skólastarf.
Úr MÍNO var mótaður Listi yfir íslenskan námsorðaforða (LÍNO-2). Orðum LÍNO-2 er raðað eftir tíðni, þar sem algengustu orðin eru efst á listanum. LÍNO-2 gefur upplýsingar um orð sem nemendur á mismunandi aldri þurfa að þekkja til að geta skilið, rætt og skrifað um það sem þeir fást við í námi.
Mótaðar voru og prófaðar Kennsluleiðbeiningar um íslenskan námsorðaforða og verkefnahefti nemenda sem byggjast á orðum LÍNO-2. Kennsluleiðbeiningarnar eru þær fyrstu sinnar tegundar hér á landi og byggjast á umfangsmiklum rannsóknum víða um heim.
Þróað var námsorðaforðapróf, Íslenska námsorðaforðaprófið, með orðum LÍNO-2 sem mælir skilning nemenda á orðunum í stuttum setningum. Prófið var þróað í fjórum þrepum með samtals um 6000 nemendum víða um land. Í lokaþrepi voru þátttakendur annaðhvort í íhlutunar- eða samanburðahópi.
Niðurstöður þessa rannsóknaverkefnis hafa leitt í ljós að nemendur í íhlutunarhópi tóku marktækt meiri framförum í orðskilningi og orðanotkun en samanburðarhópurinn. Átti það bæði við um nemendur af íslenskum og erlendum uppruna.
Niðurstöður og hagnýting rannsóknar:
- Allir nemendur sem fengu kennslu eftir leiðbeiningunum náðu marktækt betri árangri en nemendur sem fengu ekki slíka kennslu.
- Í viðtölum við um 50 kennara sem unnu eftir kennsluleiðbeiningunum kom skýrt fram að verkefnin í leiðbeiningunum virkuðu mjög vel fyrir alla nemendur. Þá kölluðu kennararnir eftir meira námsefni af þessu tagi.
- Kennsluleiðbeiningar og verkefnahefti nemenda verða birt og opin öllum á neti.
Styrkir:
Rannsóknin var styrkt af Menntarannsóknasjóði 2023
Aðrir styrkir komu úr Rannsóknasjóði HÍ, Markáætlun um tungu og tækni og Íslenskusjóðnum.Verkefnið hlaut vísinda- og nýsköpunarverðlaun HÍ í flokknum samfélag 2023.

