Rannsóknir á Menntavísindasviði

Leitarniðurstöður

8 rannsóknir fundust í flokknum Heilsuefling og íþróttafræði.
bruno-nascimento-PHIgYUGQPvU-unsplash
Andleg líðan og notkun fæðubótarefna meðal íþróttafólks á Íslandi
Rannsakendur við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri og Háskólann í Reykjavík standa að rannsókn á andlegri líðan og notkun fæðubótarefna meðal íþróttafólks í fremstu röð á Íslandi. Með niðurstöðum þessarar rannsóknar er hægt að kortleggja betur það andlega álag sem íþróttafólk í fremstu röð stendur frammi fyrir og hver notkun þeirra, þekking og viðhorf eru til fæðubótarefna, löglegra og ólöglegra.

20/01/2025
Heilsuferdalagid
Heilsuferðalagið – Langtímarannsókn á Íslendingum fæddum 1988
Heilsuferðalagið er langtímarannsókn á Íslendingum fæddum 1988 og er ein af fyrstu rannsóknum á Íslandi til að skoða ítarlega langtímaþróun á heilsufars tengdum þáttum á mótunarárunum frá unglingsaldri til fullorðinsára. Rannsóknin er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskóla Íslands auk erlendra samstarfsaðila.

01/01/2024
pexels-anastasia-shuraeva-8466915
Kennsluhættir í grunnskóla og farsæld nemenda
Hugmyndin um farsæld nemenda kom fram á sjónarsviðið sem viðbragð við að námsárangur væri talinn eina markmið menntunar. Rannsóknir á kennsluháttum hafa tengt ólíka kennsluhætti við ólíka líðan nemenda. Markmið þessarar rannsóknar er að aðgerðabinda ólíka þætti farsældar nemenda í menntunarlegu samhengi og, með notkun fyrirliggjandi gagna, bera kennsl á þá kennsluhætti sem styðja hvað best við farsæld grunnskólanema.

01/01/2024
01/01/2027
SKORA mynd
SKORA – Stúlkur, Knattspyrna og Rannsókn á Atgervi
Í rannsókninni verða framkvæmdar ýmsar mælingar á atgervi eins og þrek, snerpa, hraði, kraftur og færni hjá konum í fótbolta. Sérstök áhersla verður á að skoða líkamssamsetningu, kynþroska, beinþroska stúlkna og áhrif tíðahrings á tíðni meiðsla og brottfall stúlkna úr knattspyrnu sem verða síðan tengdir við andlega líðan, líkamlega heilsu, þjálfun og aðra lífstílsþætti.

01/01/2024
31/12/2028
Photo by Monstera Production: https://www.pexels.com/photo/crop-child-standing-in-studio-with-tray-with-assorted-fresh-vegetables-and-fruits-7352972/
Bragðlaukaþjálfun
Matvendni hjá börnum, sérstaklega þeim sem glíma við taugaþroskaraskanir á borð við ADHD og raskanir á einhverfurófi, er nýtt og vaxandi rannsóknarefni sem krefst þverfaglegrar nálgunar. Bragðlaukaþjálfun er unnin upp úr hugðarefni Önnu Sigríðar Ólafsdóttur prófessors í næringarfræði og teymis hennar. Aðaláhersla í þessu verkefni er á fæðuval, matvendni og líðan, bæði hjá börnum og foreldrum

01/08/2018
Næra og Fræða
Næra og Fræða
Rannsóknin hefur tvö meginmarkmið, að meta algengi og eðli fæðuóöryggis í þessum hópi og að skoða hvernig Næra og Fræða hefur áhrif á fylgni við ráðleggingar á mataræði, útsjónarsemi við nýtingu matvæla og breytingar á tíðni fæðuóöryggis. Verkefnið styður við íslenska matvælastefnu og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna, með áherslu á fæðuöryggi, sjálfbærni og lýðheilsu.

01/08/2023
camylla-battani-son4VHt4Ld0-unsplash
Erlendar konur á Íslandi: útkoma á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu og samskipti þeirra við heilbrigðiskerfið
Markmið rannsóknarinnar var að bera saman útkoma kvenna af erlendum uppruna og íslenskra kvenna með tilliti til meðgöngu, fæðingar og fyrstu viku eftir fæðingu. Jafnframt var upplifun kvenna af erlendum uppruna skoðuð varðandi samskipti við heilbrigðiskerfið og upplýsingar aflað um reynslu fagfólks af því að veita þessum hópi kvenna þjónustu.

01/01/2018
31/12/2023
Heilsuhegdun_ungra_Islendinga_Featured
Heilsuhegðun ungra Íslendinga
Viðamikil langtímarannsókn á stöðu heilbrigðisþátta ungra Íslendinga og tengsl þeirra við svefn, hreyfingu og skólaumhverfi. Rannsóknin er unnin af vísindamönnum við Háskóla Íslands.

01/01/2007