...

Lestur og lestrarmenning: Heimalestur

Við upphaf skólagöngu birtist lestrarhefti í skólatösku barns og framvegis er það undir foreldrum komið að sjá til þess að barnið lesi heima á hverjum degi. Markmið rannsóknarinnar er að skoða reynslu foreldra af heimalestri og hvernig ólíkar aðstæður fjölskyldna endurspeglast í framkvæmd hans, í þeim tilgangi að stuðla að samtali um samstarf milli skóla og fjölskyldna í tengslum við lestrarnám.

Rannsóknin byggir á 13 djúpviðtölum við 15 foreldra barna í 1.–6. bekk grunnskóla. Foreldrarnir eru með ólíkan bakgrunn og lesa mismikið með börnum sínum. Helstu niðurstöður sýna að mjög misjafnt er hversu auðvelt foreldrum þykir að sinna heimalestri barna sinna. Flestir viðmælendur fundu þó fyrir streitu og kvíða í sambandi við heimalesturinn. Einnig kom fram að flestum foreldrum þótti því lesefni sem skólinn útvegaði vera ábótavant og sumir útveguðu sjálfir börnum sínum bækur. Þá voru flestir foreldrar þeirrar skoðunar að lestur væri mikilvægur en upplifðu engu að síður neikvæð áhrif heimalestursins á lestraráhuga barna sinna. Fyrirkomulagið væri of þvingað og formfast. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að staðlað fyrirkomulag heimalesturs geti aukið ójöfnuð milli nemenda frekar en að draga úr honum. Þá benda niðurstöðurnar til þess að endurskoða þurfi með hvaða hætti lestrarþjálfun fari fram innan skólakerfisins og styðjast við fleiri leiðir sem mæti betur ólíkum aðstæðum nemenda.

Rannsóknin er hluti af yfirstandandi doktorsrannsókn í þjóðfræði þar sem áherslur stjórnvalda og menntakerfisins á lestur og lestrarmenningu eru teknar til skoðunar með aðferðum gagnrýninnar orðræðugreiningar og vettvangsrannsóknar og settar í menningarlegt og félagslegt samhengi.

Seraphinite AcceleratorOptimized by Seraphinite Accelerator
Turns on site high speed to be attractive for people and search engines.