Rannsóknir á Menntavísindasviði

Leitarniðurstöður

2 rannsóknir fundust í flokknum Leikur.
Stilla
Stilla – hæglátt leikskólastarf
Meginmarkmið verkefnisins er að þróa hæglátt leikskólastarf og dýpka þannig þekkingu og skilning okkar á upplifun barna á tíma í leikskólum. Stuðst verður við aðferðir starfendarannsókna og uppeldisfræðilegar skráningar til að skrá ferlið. Tilgangur þess er að auka þekkingu starfsfólks, foreldra og barna á námi barna og þeim tíma sem börn þurfa til að kanna heiminn og prófa hugmyndir sínar.

01/09/2022
31/08/2025
Leikur, nám og gleði
Leikur, nám og gleði
Meginmarkmið verkefnisins var að varpa ljósi á sameiginlega leikheima barna og leikskólakennara í fjórum leikskólum á Íslandi. Rannsóknin fór fram í fjórum leikskólum í Reykjavík í samstarfi við fjóra leikskóla í Kungsholmen í Stokkhólmi og Stokkhólmsháskóla.
01/02/2022
01/01/2026