3 rannsóknir fundust í flokknum Íslenska æskulýðsrannsóknin.
Íslenska æskulýðsrannsóknin (ÍÆ)
Markmið verkefnisins er að safna gögnum um velferð og viðhorf barna og ungmenna og gera niðurstöður aðgengilegar til að styðja við stefnumótun aðila sem koma að þjónustu og umönnun barna og ungmenna. Grundvöllur verkefnisins liggur einnig í að skapa aðstæður til snemmbærs inngrips og stuðnings við börn og fjölskyldur þeirra.
01/01/2021
Health Behavior in School aged Children (HBSC)
Health Behavior in School aged Children (HBSC) er rannsókn á vegum Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO). Markmið rannsóknarinnar er að safna samanburðarhæfum gögnum um heilsu, velferð, heilsuhegðun og félagslegt umhverfi 11, 13 og 15 ára barna í þátttökulöndunum.
01/01/2004
The European School Survey Project on Alcohol and Other Drugs (ESPAD)
ESPAD) er evrópskt rannsóknarverkefni sem miðar að því að safna samanburðarhæfum gögnum um neyslu 16 ára unglinga á áfengi, tóbaki og öðrum ávana- og vímuefnum. Einnig er spurt um fjárhættuspil og ýmislegt í félagsumhverfi svarenda sem tengist eða hefur áhrif á vímuefnanotkun.